Stofan á rætur að rekja til ársins 2004 þegar Herdís Hallmarsdóttir hrl. hóf rekstur lögmannsstofu. Í apríl 2008 hófu Ingibjörg Björnsdóttir hdl. og Herdís Hallmarsdóttir samstarf sem gert hefur þeim mögulegt að bjóða viðskiptavinum jafnframt upp á bókhaldsþjónustu. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð þar sem trúnaður við viðskiptavini er hafður að leiðarljósi. Það er grunnur réttarríkisins að almenningur hafi jafnan aðgang að vandaðri þjónustu lögmanns og ráðgjöf um réttarstöðu sína og tækifæri til að standa á rétti sínum.