BARNARÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita ráðgjöf þegar til skilnaðar eða sambúðarslita kemur og sjá um alla skjalagerð vegna forsjá barna með gerð forsjársamninga, umgengnisamninga og fleira. Þá veita starfsmenn einnig aðstoð við að koma á breytingum á núverandi skipan forsjár eða semja við aðila um umgengnisrétt.
ERFÐARÉTTUR/SKIPTI DÁNARBÚA
Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa sérþekkingu á skiptastjórn dánarbúa. Starfsmenn veita ráðgjöf og aðstoð hvort sem er við einkaskipti eða opinber skipti á dánarbúum. Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa einnig mikla reynslu í gerð og frágangi erfðaskráa og sjá um alla skjalagerð því viðkomandi.
FASTEIGNAKAUPARÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoð á öllum sviðum fasteignamála. Starfsmenn hafa víðtæka reynslu í ráðgjöf vegna fasteignagalla og hagsmunagæslu vegna þeirra og geta jafnframt veitt aðilum ráðgjöf allt frá upphafi fasteignakaupa til loka þeirra. Einnig geta starfsmenn EMBLU lögmanna veitt milligöngu um leigu á fasteign og aðstoðað við gerð kaupsamninga og eignaskiptayfirlýsinga.
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF
Starfsmenn EMBLU lögmanna aðstoða einstaklinga og lögpersónur við endurskipulagningu á fjárhag vegna greiðsluerfiðleika og veita ráðgjöf varðandi þær leiðir sem færar eru miðað við fjármálastöðu viðkomandi.
GJALDÞROTASKIPTI
Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa mikla reynslu af skiptastjórn og yfirgripsmikla þekkingu á sviði skiptaréttar, hvort sem um er að ræða skipti á þrotabúum, kröfulýsingar í þrotabú, ráðgjöf vegna greiðslustöðvunar, aðstoð við nauðasamningsumleitanir eða greiðsluaðlögun.
HJÚSKAPARRÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna taka að sér skilnaðarmál og aðstoða fólk við fjárskipti, hvort sem er fjárskipti hjóna eða aðila í óvígðri sambúð/staðfestri samvist. EMBLA lögmenn annast gerð kaupmála og sjá um nauðsynleg samskipti við yfirvöld vegna þeirra. Starfsmenn hafa mikla reynslu af málum sem þessum og afgreiða þau hratt og örugglega.
HÚSFÉLÖG
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita húsfélögum húsfundaþjónustu, t.d. aðstoð við fundarboðun, fundarstjórn og fundarritun. Einnig er boðið upp á bókhaldsþjónustu fyrir húsfélög og miðlun bókhaldsupplýsinga fyrir húsfundi.
INNHEIMTA
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita viðskiptavinum sínum persónulega og sveigjanlega þjónustu og taka að sér innheimtu krafna fyrir einstaklinga, lögaðila sem og opinbera aðila.
KRÖFURÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa sinnt fjölda ágreingingsmála vegna ýmiss konar vanefnda í öllum helstu tegundum kaupa og hafa reynslu af því að aðstoða bæði kaupendur og seljendur í því samhengi.
LEIGURÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf í málum er varða gerð og uppsögn leigusamninga ásamt alhliða ráðgjöf varðandi lausn ágreiningsmála.
MÁLFLUTNINGUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna taka að sér málflutning fyrir héraðsdómstólum og Hæstarétti. Starfsmenn flytja öll mál fyrir einstaklinga og lögaðila sem eiga undir þau sérsvið sem stofan starfar á.
RÉTTARGÆSLA
Starfsmenn EMBLU lögmanna taka að sér réttargæslustörf fyrir brotaþola í sakamálum. Málaflokknum er sinnt af þeirri alúð sem hann þarfnast og hafa starfsmenn farið með fjölda slíkra mála.
SAMNINGARÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa mikla þekkingu á öllum sviðum samningaréttar og veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf í tengslum við samningagerð og efndir samninga. Stofan sér einnig um yfirlestur samninga fyrir einstaklinga sem fyrirtæki.
SKAÐABÓTARÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita ráðgjöf og taka að sér hagsmunagæslu vegna skaðabótakrafna, þar með talið á hendur vátryggingarfélögum. EMBLA lögmenn hafa mikla reynslu af meðferð slysamála fyrir einstaklinga og aðstoða þá við að sækja bætur vegna líkamstjóna. Starfsmenn annast alla gagnaöflun fyrir viðkomandi og gæta hagsmuna viðskiptavinarins frá upphafi til enda.
SKATTARÉTTUR
EMBLA lögmenn veitir einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf við val á félagaformi og stofnun félaga. Einnig veitir félagið faglega lögfræðilega ráðgjöf á sviði skattamála og sér um hvers kyns samskipti við skattyfirvöld og dómstóla. Veitt er rágjöf og aðstoð við m.a. hvers konar fyrirspurnir, öflun bindandi álita og kærur og málflutning fyrir dómstólum.
VERJENDASTÖRF
Starfsmenn EMBLU lögmanna búa yfir víðtækri reynslu af vörn sakborninga í sakamálum, bæði stórum sem smáum.
VERKTAKARÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf í málum er varða gerð og uppsögn verksamninga ásamt alhliða ráðgjöf varðandi lausn ágreiningsmála. Starfsmenn veita einnig aðstoð við túlkun verksamninga og ráðgjöf og aðstoð við útboð. Starfsmenn EMBLU lögmanna hafa mikla þekkingu á verktakarétti og hafa lögmenn stofunnar góða reynslu í rekstri slíkra mála fyrir dómstólum.
VINNURÉTTUR
Starfsmenn EMBLU lögmanna veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf í málum er varða gerð og uppsögn ráðningasamninga ásamt alhliða ráðgjöf varðandi lausn ágreiningsmála. Starfsmenn taka að sér hagsmunagæslu vegna ágreiningsmála sem upp geta komið í samskiptum vinnuveitenda og launþega.
|