EMBLA lögmenn býður upp á almenna bókhaldsþjónustu og leggur mikið upp úr vandaðri og skilvirkri þjónustu. Bókhaldskerfi stofunnar, dk bókhaldskerfi, er vistað hjá dk hugbúnaði ehf. sem sér um daglega afritunartöku og eykur það öryggi bókhaldsins til muna.
Viðskiptavinum stofunnar er boðið upp á þrjá möguleika varðandi vinnslu bókhalds:
- Vinna við færslu bókhalds fer fram á skrifstofu EMBLU lögmanna.
Öll bókhaldsvinna fer fram í gegnum bókhaldkerfi stofunnar.
- Vinna við færslu bókhalds fer fram á starfsstöð viðskiptavinar.
Öll bókhaldsvinna fer fram í gegnum bókhaldskerfi viðskiptavinar.
- Vinna við færslu bókhalds fer fram bæði á skrifstofu EMBLU lögmanna og á starfsstöð viðskiptavinar.
Öll bókhaldsvinna fer fram í gegnum bókhaldskerfi stofunnar en vinnan er ýmist unnin af starfsmanni EMBLU lögmanna á stofunni eða af viðskiptavini á sinni starfsstöð. Í samvinnu við dk hugbúnað ehf. getur stofan og viðskiptavinur þannig unnið á sama heimasvæði þegar kemur að færslu bókhalds. Með þessu móti getur viðskiptavinur m.a. fært sölureikninga sjálfir en falið stofunni færslu á öðru bókhaldi.
Þeir viðskiptavinir sem eru í bókhaldsþjónustu hjá okkur fá 10% afslátt af tímagjaldi bókhaldsþjónustu ef þeir óska einnig eftir að stofan sjái um almenna lögfræðiþjónustu og undirritar þar til gerða verkbeiðni.
|