UM FYRIRTÆKIÐ  

 

 

Stofan á rætur að rekja til ársins 2004 þegar Herdís Hallmarsdóttir hrl. hóf rekstur lögmannsstofu. Í apríl 2008 hófu Ingibjörg Björnsdóttir hdl. og Herdís Hallmarsdóttir samstarf sem gert hefur þeim mögulegt að bjóða viðskiptavinum jafnframt upp á bókhaldsþjónustu. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð þar sem trúnaður við viðskiptavini er hafður að leiðarljósi. Það er grunnur réttarríkisins að almenningur hafi jafnan aðgang að vandaðri þjónustu lögmanns og ráðgjöf um réttarstöðu sína og tækifæri til að standa á rétti sínum. Viðskiptavinir EMBLU eiga ávallt greiðan aðgang að lögmanni.

Stofan veitir alla almenna lögfræðiþjónustu. Meðal viðskiptavina stofunnar eru bæði innlend og erlend fyrirtæki og jafnframt einstaklingar. Starfsmenn stofunnar búa yfir reynslu og sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum lögfræðinnar svo sem fyrirtækjaráðgjöf og samningagerð. Þá hefur Herdís Hallmarsdóttir lögmaður mikla reynslu af málflutningi og hefur hún unnið að málum á fjölmörgum réttarsviðum.

Stofan er til húsa á 4. hæð í Lágmúla 5 í Reykjavík.

Skrifstofan er opin frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga, sími 534 2600, fax 534 2605.

 

 

 

Á FORSÍÐU GJALDSKRÁ
EMBLA lögmenn